![](https://nordichouse.is/wp-content/uploads/2017/03/nh-1600x-tix-1280x720.jpg)
Wagnerfélagið: Söngkona aldarinnar
14:00 - 15:30
Wagnerfélagið: Söngkona aldarinnar
Fyrirlestur í Norræna húsinu laugardaginn 19. maí kl. 14 í tilefni aldarafmælis Birgit Nilsson
Birgit Nilsson var ein fremsta dramatíska óperusöngkona 20. aldar. Hún fæddist í maí 1918 og er nú haldið upp á aldarafmæli hennar víða um heim. „La Nilsson“ debúteraði í Konunglega óperunni í Stokkhólmi árið 1946. Árið 1954 söng hún sitt fyrsta hlutverk í Bayreuth sem Elsa í Lohengrin og var það fyrsta sumarið af sextán sem hún varði í Bayreuth þar sem hún söng Brünnhilde og Isolde allt til ársins 1970.
Dr. Sveinn Einarsson leikstjóri og fyrrverandi Þjóðleikhússtjóri mun annast dagskrá um Birgit Nilsson á vegum Wagnerfélagsins og hefst hún laugardaginn 19. maí kl. 14
Um Svein: http://sveinneinarsson.weebly.com/ferilskraacute.html.
Verið hjartanlega velkomin!
![](https://nordichouse.is/wp-content/uploads/2018/04/sveinn-einarsson.jpg)