Velkomin á opnun Leyndarmáls skordýranna!
13:00-16:00
Sumarsýningin í Barnasafni Norræna hússins opnar laugardaginn 16. maí frá kl. 13:00–16:00.
Yngstu gestum er boðið að taka þátt í vatnslitasmiðju, skoðað sýninguna og fara í skordýraratleik!. Þeir sem finna öll skordýrin geta farið í afgreiðslu bókasafnsins til að sækja verðlaun! Einnig verða leikir í tengslum við sýninguna og þeir sem vilja vera úti geta tekið með sér fuglabingó.
Sýningin Leyndarmál skordýranna er byggð á bókinni Insektenes hemmeligheter eftir Anne Sverdrup-Thygeson og má sýnir fallegar vatnslitamyndir eftir Ninu Marie Andersen.
Skordýr eru eldri en risaeðlur og finnast alls staðar, allt frá eyðimörkum til norðurheimskautsbaugs. Sumarsýning Barnasafnsins kannar leyndan heim skordýra á Norðurlöndunum. Hún gefur innsýn í aðlögunarhæfni skordýra og segir frá geitungum sem lifa í 400 milljónir ára, lirfum sem breyta öðrum skordýrum í uppvakninga og bjöllum með eiturbyssum! Þó að sum skordýr geti virst pirrandi – eins og moskítóflugur eða lús, þá eru þau nauðsynleg fyrir vistkerfið.
Opnunin er ókeypis og allir eru velkomnir!
Aðgengi að barnabókasafni er niður stiga frá bókasafni eða með lyftu frá andyri og í gegnum sýningarýmið Hvelfinu. Nánari upplýsingar um aðgengi er að finna með því að smella hér.
Verk á forsíðu: Insekter i skogen eftir Nina Marie Andersen.