Tónlistar stund fyrir yngstu börnin (0-6 ára)


Barnabókasafn
Aðgangur ókeypis

Fjölskyldur með börn á aldrinum 0-6 ára er boðið á gagnvirka tónlistarstund sem fiðluleikarinn og tónlistarkennarinn Natalia Duarte Jeremias stýrir.

Natalia notar rödd sína til að ná sambandi við börnin og leikur með tón og takt – mikilvægt er að stundin fari fram án orða svo að einbeiting barnanna verði einungis að hljóðheiminum, melódíu og taktinum. Þessi aðferð byggist á aðferðum og tónlistarnáms kenningum  Edwin Gordon’s, sem miða að því að þróa tónlistar hugsun og sköpun hjá yngstu börnunum. Stundin hefst á því að Natalia segir stuttlega frá því hvað mun fara fram og hvers er ætlast af foreldrum (á ensku). Eftir stundina biður Natalia foreldrum í opið samtal og svarar spurningum og getur samtalið farið fram á ensku, spænsku og ítalska.

Boðið er uppá tvo tíma:

10:30-11:00 (0-3 ára)

16:00-16:30 (0-6 ára)

Athugið að pláss er takmarkað og ráðlegt að mæta á góðum tíma.

Natalia er víólu leikari  og tónlistar kennari. Hún hefur reynslu á að vinna með yngstu börnunum við tónlistarnám og lauk nýverið við nám á ítalíu í tónlistar aðferðafræði fyrir ungabörn. þar sem hún kynntist aðferðum  Edwins Gordon.
Á árunum 2015-2024 var hún að spila með alþjóðlegum sinfóníuhljómsveitum og kvartettum á borð við Orchestra Barocca di Milano, Barokkbandinu Brák og fleirum en árið 2022 lauk hún einnig við meistaranám í tónlistarkennslu frá ítalska skólanum Conservatory of Padua.

Natalia Duarte Jeremias. Ljósmynd: Erin McKinney

Hægt er að fræðast meira um feril Natalia, útgáfur og viðburði á  www.nataliaduarte.net

AÐGENGI: Barnabókasafnið er aðgengilegt fyrir hjólastóla frá Hvelfingu sýningarrými. Starfsfólk bókasafns gefur góðar leiðbeiningar. Salerni hússins eru aðgengileg hjólastólum og öll eru þau kynhlutlaus.