Richard Wagnerfélagið


13:00

Richard Wagnerfélagið á Íslandi heldur aðalfund sinn í húsinu 27. febrúar kl. 13.

Að loknum fundinum, eða kl. 14 mun Magnús Lyngdal Magnússon halda erindi um óperuna Parsifal. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis.

Magnús mun fjalla um óperuna út frá hljóðritunarsögu hennar og velta upp spurningum um hvort túlkun verksins hafi breyst frá því að hún var frumflutt árið 1882.

Magnús Lyngdal Magnússon lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1996 og meistaraprófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2002. Hann var áður aðstoðarforstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Ísland (Rannís) en starfar nú sem aðstoðarmaður rektors Háskóla Íslands. Magnús er mikill kunnáttumaður um tónlist og hefur haldið fjölda fræðsluerinda ásamt greinaskrifum fyrir Wagnerfélagið, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslensku óperuna.