Student Refugees Iceland


16:00-18:00

Student Refuees Iceland er stúdentarekið framtak með það að markmiði að auka aðgengi
hælisleitenda og flóttafólks á Íslandi að háskólamenntun.

Ert þú flóttamaður eða hælisleitandi og býrð á Íslandi?
Hefur þú áhuga á að sækja um háskólanám?

Á Umsóknarkaffihúsinu hefur þú möguleika á að koma, ræða við okkur og þiggja aðstoð ef þess er þörf. Aðstoðin getur falið í sér leiðbeiningar við umsóknarskrif en einnig við öll þau vandamál sem geta komið upp á umsóknarferlinu.

Sjálfboðaliðarnir okkar geta veitt upplýsingar um hvar, hvernig og hvenær hægt sé að sækja um háskóla á Íslandi.

● Hvaða námsleiðir eru í boði?
● Hverjar eru aðgangskröfurnar?
● Hvenær eru umsóknarfestir?
● Hvaða skjöl þarf ég?
● Hvernig get ég fengið fyrra nám mitt metið?