Stefna stjórnmálaflokkanna í umhverfismálum? – Streymi


20:00

Fuglavernd, Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands efna til opins fundar mánudaginn 16. október um stefnu stjórnmálaflokkanna í umhverfismálum.

Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu og hefst kl. 20.00.

Fulltrúar stjórnmálaflokkanna verða spurðir um stefnu þeirra varðandi tvö meginmál:

    1. Stofnun þjóðgarðs á hálendi Íslands, hver er stefna framboðsins?
    2. Hvernig skal vernda lífríki hafsins – hér heima og á alþjóðavettvangi – gegn mengun, súrnun, og öðrum skaðlegum áhrifum loftslagsbreytinga?

Að kynningum loknum munu fundargestir fá tækifæri til að spyrja fulltrúa stjórnmálaflokkanna spurninga úr sal um stefnu þeirra í umhverfis- og náttúruverndarmálum.

 

Frekari upplýsingar veitir

Árni Finnsson, sími 897 2437