Sögustund á norsku


13:00

Norsk sögustund í Barnahelli – barnabókasafni Norræna hússins. 

Við lesum og leikum okkur á norsku. Hópurinn passar best fyrir börn á aldrinum 4-10 ára en öll börn sem skilja norsku eru velkomin.

Þetta er ókeypis viðburður fyrir börn sem vilja hitta önnur norskumælandi börn. Foreldrum er velkomið að taka þátt með börnunum eða kíkja í bókahillurnar á bókasafninu.

Telma Rós Sigfúsdóttir leiðir sögustundina.