Anna Sóley


15:00
Gróðurhús
Aðgangur ókeypis

Myndrænir textar og töfrandi andrúmsloft bjóða áheyrendum að stíga inn í draumkenndan heim sem blandar saman áhrifum frásagnarhefðar, íslenskum þjóðsagnaarfi og hversdagsleika samtímans. Anna Sóley er íslenskt söngvaskáld og hefur komið víða við í tónlist sem söngkona og fiðluleikari bæði á Íslandi og í Evrópu. Hún kemur fram ásamt systur sinni, Lilju Maríu sem spilar á Huldu, sjálfsmíðað hljóðfæri og saman sækja þær tónlistarlega til söngvaskálda sjöunda og áttunda áratugarins.

Anna vinnur nú að annarri sólóplötu sinni, Painting Reality, Photographing Fiction, konsept plötu sem kannar hvernig frásögn á það til að hafa áhrif á sýn okkar á tilveruna. Fyrsta plata hennar, Modern Age Ophelia, kom út 2022 og tónlistargagnrýnandinn David Fricke hafði þetta að segja um verkið: „Ef þú heldur að enginn geri plötur lengur sem minna á fyrstu fjórar plötur Joni Mitchell, leggðu við hlustir hér.“