Sænsk sögustund 11.september


12:00-14:00

Sænsk sögustund

Sænskur móðurmáls / sögustundarhópur fyrir sænskumælandi börn (0-12 ára) byrjar nú að hittast í bókasafni Norræna hússins. Fyrsta skiptið er nú á sunnudaginn 11. september milli kl. 12 og 14. Ekki þarf að skrá sig fyrirfram og aðgangur ókeypis fyrir alla sænskumælandi krakka og foreldra þeirra. Hópnum verður skipt eftir aldri. Við lesum, tölum saman á sænsku, syngjum, spilum og horfum á sænskar myndir. Norræna húsið býður kaffi og djús en endilega hafið eitthvað smálegt með til að narta í fyrir börnin. Verið velkomin.

Næstu dagsetningar fyrir sænska móðurmálshópinn eru 16. október, 13. nóvember og 11. desember.