PIKKNIKK TÓNLEIKAR: Los Bomboneros


15:00
Gróðurhús
Aðgangur ókeypis

PIKKNIKK #3: The Nordic House summer concert series` third act is Los Bomboneros! Welcome on Sunday 7th of July at 3pm. Free entry as always and bring your friends!

Hljómsveitin Los Bomboneros hefur getið sér gott orð fyrir túlkun sína á sjóðheitri suðrænni tónlist. Efnisskráin verður með öðru sniði en hefðbundið prógramm Los Bomboneros sem einkennist alla jafna af dansvænni tónlist. Hér verða þjóðlagahefðir Suður-Ameríku hins vegar heiðraðar við lágstemmdari stemningu í glænýjum útsetningum úr ranni sveitarinnar. Þá er af nógu að taka og ber helst að nefna lagasmelli sem söngkonan Mercedes Sosa og krúnerinn Julio Jaramillo gerðu fræga ásamt ýmsu öðru góðgæti, allt frá þrískiptum takti Andesþjóðanna yfir í angurværan söng mariachi-söngvara Mexikó.

Los Bomboneros skipa þau Alexandra Kjeld (bassi og söngur), Daníel Helgason (tresgítar og gítar), Kristofer Rodriguez Svönuson (slagverk) og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir (básúna og fiðla). Hljómsveitin hefur sérhæft sig í tónlist Mið- og Suður-Ameríku ásamt frumsömdu efni og hefur komið víða fram við miklar vinsældir en tónleikar sveitarinnar eiga það gjarnan til að breytast í funheitt danspartý þrátt fyrir að hljómsveitin muni nú bjóða upp á öðruvísi stemningu.

Öll Velkomin!

Hægt er að versla veitingar hjá SÓNÓ og taka með sér út. 

PIKKNIKK tónleikasería ársins er skipulögð af José Luis Anderson.