Niður – íslenskur sirkus um Ljósagang


17:00
Salur
Aðgangur ókeypis

Verk John Cage heimfært á Ljósagang Dags Hjartarsonar

Niður, íslenskur sirkus um Ljósagang, er Íslandsfrumflutningur á verki eftir John Cage frá árinu 1979. Verkið snýst um að umbreyta bók í tónleika og innsetningu. Íslenska útgáfa verksins styðst við bók Dags Hjartarsonar frá árinu 2022, Ljósagangur. Verkið verður flutt í Norræna húsinu í nábýli við söguslóðir Ljósagangs.

Við frumflutning hét verkið Roaratorio, An Irish Circus on Finnegans Wake, en þá studdist tónskáldið Cage við samnefnda bók James Joyce.

Tónlistarhópurinn Skerpla sem starfar við Listaháskóla Íslands flytur verkið undir stjórn Berglindar Maríu Tómasdóttur, prófessors. Verkefnið er leitt af Berglindi Maríu í samvinnu við Victoriu Miguel, sérfræðing í John Cage og doktorsnema við Háskólann í Glasgow og Jesper Pedersen, tónskáld og aðjúnkt við Listaháskóla Íslands.

Innsetning 11. júní kl. 17:00
Tónleikar 11. júní kl. 20:30

Listrænir aðstandendur: Berglind María Tómasdóttir, Victoria Miguel, Jesper Pedersen, tónlistarhópurinn Skerpla,

Samstarfsaðilar: Listaháskóli Íslands, tónlistardeild, rannsóknasjóður Listaháskóla Íslands, Háskólinn í Glasgow

Aðgengi að Elissu sal er mjög gott, aðgengileg og kynhlutlaus salerni eru á sömu hæð. Athugið að þessa stundina eru framkvæmdir utanhúss og óvisst hvernig aðgengi verður á degi viðburðar. Nánari upplýsingar veitir: kolbrun@nordichouse.is