Atlantshafsbandalagið og alþjóðaöryggismál – Streymi


12:00

Atlantshafsbandalagið og alþjóðaöryggismál


Miðvikudaginn 8. mars 2017, klukkan 12.00 til 13.00. Staðsetning: Norræna húsið
Í tilefni af heimsókn varaframkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, Rose Gottemoeller, stendur utanríksiráðuneytið fyrir opnum fyrirlestri í samvinnu við Alþjóðamálastofnun HÍ og Varðberg.

Dagskrá

  • Kynning: Pia Hansson, Forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar HÍ
  • Opnunarávarp: Jóna Sólveig Elínardóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis
  • Aðalræðumaður: Rose Gottemoeller, varaframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins
  • Spurningar og svör

Rose Gottemoeller hóf störf sem varaframkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins í október 2016, en þár áður starfaði hún í fimm ár sem vararáðherra í bandaríska utanríkisráðuneytinu með ábyrgð á vopnaeftirliti og alþjóðaöryggismálum.

Hún hefur starfað sem fræðimaður í alþjóðasamskiptum og starfaði áður fyrir hugveitur í faginu, m.a. sem forstöðumaður Carnegie Moscow Center.