Mýrin barnabókmenntahátíð


Alþjóðlega barnabókmenntahátíðin Mýrin verður haldin í tíunda sinn í Norræna húsinu dagana 14.-16. október 2021 undir heitinu Saman úti í mýri. Á hátíðinni er boðið upp á fjölbreytta dagskrá með þátttöku innlendra og erlendra höfunda og fræðimanna, fyrir fræðimenn, fagfólk, almenning, fjölskyldur, börn og skólahópa. Meðal atriða eru upplestrar, kynningar, fyrirlestrar, höfundaspjall, sýningar og vinnustofur.

Heimasíða Mýrarinnar

Facebook