MANNRÉTTINDI ÁN LANDAMÆRA – Vinnusmiðja fyrir fjölskyldur 2.


15-17

Norrænahúsið í samvinnu við listkennsludeild Listaháskóla Íslands býður upp á skapandi samverustund fyrir fjölskyldur undir handleiðslu Guðbrands Magnússonar myndlistarmanns.  Í vinnusmiðjunni gefst þátttakendum tækifæri að vinna myndskreytingar í tengslum við mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Vinnusmiðjan er opin öllum áhugasömum og fer fram kl 15-17 á neðri hæð Norræna hússins. Föstudaginn 28. apríl,  laugardaginn 29. apríl og sunnudaginn 30 apríl. Verið velkomin.