líf - barnamenningar

Líf í geimnum !


Barnabókasafn
Aðgangur ókeypis

Komdu með í geimferðalag á barnabókasafni Norræna hússins!

Á Barnamenningarhátíð er fjölskyldum og leikskólahópum boðið á sýninguna og verður geimföndur á staðnum sem að ungum gestum býðst að hengja upp á veggi sýningarinnar. Þar með mun sköpunarverk barna setja sitt mark á sýninguna eftir því sem líður á hátíðina. Seglaveggurinn sívinsæli er einnig á sínum stað með nýju geimútliti.

Sýningin Líf í geimnum er byggð á sögu eftir Zakiya Ajmi og Söru Lundberg. Hún fjallar um unga stúlku sem er nýflutt á efstu hæð í háhýsi í borginni. Líf horfir út í geim úr stjörnusjónaukanum sínum og slæst í för með stelpu um borð í geimskip frá tímum geimkapphlaupsins mikla. Geimstelpan bjó eitt sinn á jörðinni en býr nú ásamt svörtum hundi á reikistjörnu sem er ljósár í burtu. Hvernig ætli sé að búa úti í geimi fjarri mömmu og pabba og ljósum borgarinnar? Hvernig ætli alheimurinn líti út séður úr geimskipi?

Við bjóðum ykkur velkomin í „geimsókn“!

Ókeypis inn og allir velkomnir!
Nú er hafinn nýr leikur í tengslum við sýninguna: 
Finndu geimhundana!  Skemmtilegur fjölskylduratleikur!

Í sögunni Líf í geimnum sem núverandi sýning á barnabókasafni Norræna hússins er byggð á, er eini vinur geimstelpunnar lítill geimhundur. Hann er ekki með nafn í sögunni en er líklegast innblásinn af hundinum Laiku, sem var fyrsta lifandi veran sem var send út í geim. Tíu geimhundar í mismunandi stærðum leynast á veggjum barnabókasafnsins inni á sýningunni. Þeir sem geta fundið alla tíu hundanna, hafa tækifæri á að skrifa niður svörin, setja í póstkassa eða í afgreiðslu barnabókasafnsins og taka þátt í vinningsleik.

Í lok ágúst verður vinningshafinn dreginn út og hlýtur geimverðlaun!