Leyndarmál skordýranna


Barnabókasafn
Aðgangur ókeypis

Skordýr eru eldri en risaeðlurnar og finnast alls staðar, frá eyðimörkum til heimskautsbauga. Sumarsýning barnabókasafnsins skoðar hulinn heim skordýra á norrænu löndunum. Hún gefur innsýn í aðlögunarhæfni skordýranna og segir frá geitungum sem lifa í 400 milljónir ára, lirfum sem breyta öðrum skordýrum í uppvakninga og bjöllum með eiturbyssur! Þó svo að sum skordýr geti virst pirrandi- líkt og moskítóflugur eða lús, þá eru þau nauðsynleg fyrir vistkerfið.

Á sýningunni má einnig finna gagnvirka leiki, rými fyrir sköpun og lestrarhorn undir laufblöðum og lestrartjald í anda sama. Klifurgrind fyrir yngstu gesti verður einnig á sínum stað og úrval bóka sem beina sjónum að lífi skordýra.

Sumarnámskeið, föndurstundir og sögustundir verða einnig í boði í tenglsum við sýninguna og hægt verður að finna nánari upplýsingar á heimasíðu Norræna hússins og samfélagsmiðlum.

Aðgengi að barnabókasafni er niður stiga frá bókasafni eða með lyftu frá andyri og í gegnum sýningarýmið Hvelfinu. Nánari upplýsingar um aðgengi er að finna með því að smella hér. 

Verk á forsíðu: Insekter i skogen eftir Nina Marie Andersen.

Aðrir viðburðir