Krákan situr á steini: Komdu að syngja og dansa við norræn þjóðlög – Í STREYMI


13:00

Viltu eiga notalega stund med barninu þínu á tónlistarnámskeiði heima í stofu? Diljá Sigursveinsdóttir, tónlistarkennari, söngkona og fiðluleikari leiðir námskeið fyrir ung börn (frá 3ja mánaða til 6 ára) og fjölskyldur þeirra miðvikudaginn 29. apríl 2020 kl. 13:00. Viðburðinum verður streymt úr Norræna húsinu á facebook og er opinn öllum.

Markmið námskeiðsins er að kynna norræn þjóðlög fyrir barnafjölskyldum og vekja áhuga þeirra á söng og hreyfingu ásamt því að hvetja foreldra til að nota söng og tónlist í daglegu uppeldi og umönnun barna sinna.