Klassíkin í Vatnsmýrinni: Í hjarta Parísar


20:00

Hafdís Vigfússdóttir flautuleikari og Kristján Karl Bragason píanóleikari leika  sprúðlandi franska efnisskrá, öndvegisverk franska flautuskólans auk frumflutnings á verki með skírskotun til Parísar eftir Gísla J. Grétarsson. Fantasie op. 79 eftir Fauré, Sónata nr. 1 eftir Gaubert, Sónata fyrir flautu og píanó eftir Poulenc, Chant de Linos eftir Jolivet og Les escaliers des rues de Paris eftir Gísla J. Grétarsson.

Hafdís Vigfúsdóttir stundaði framhaldsnám í Hollandi, Frakklandi og Noregi og vann önnur verðlaun í alþjóðlegu keppninni “Le Parnasse” í París. Sem einleikari hefur Hafdís komið fram með Kammersveit Reykjavíkur, Ungfóníu, Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún leikur kammertónlist með Íslenska flautukórnum og Stirni ensemble og kennir við tónlistarskóla Hafnarfjarðar.

Kristján Karl stundaði framhaldsnám í Þýskalandi, Frakklandi og Hollandi. Árið 2000 hlaut hann fyrstu verðlaun í framhaldsflokki píanókeppni Íslandsdeildar EPTA. Kristján hefur leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit unga fólksins í píanókonsert nr. 1 eftir Brahms og haldið einleikstónleika í Tíbrárröðinni í Salnum í Kópavogi. Kristján er meðleikari og píanókennari við Listaháskóla Íslands, Menntaskóla í tónlist og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.

Gísli Jóhann Grétarsson tónskáld og stjórnandi er fæddur á Akureyri en starfar nú í Reykjavík eftir 10 ára dvöl við tónlistarstörf í Skandinavíu. Hann hefur samið óperur, kammertónlist og kórverk sem hafa verið flutt á Norðurlöndunum, Ítalíu, Þýskalandi, Austurríki, Spáni, Frakklandi, Bandaríkjunum og Ástralíu. Nú síðast var verk hans VOICELAND flutt af kammerkórnum Hymnódíu á Óperudögum í Reykjavík. Næsta kammerópera Gísla, Systemet, verður frumflutt í Osló vorið 2020.

 

Aðgangseyrir er kr. 3.000 og 2.000 kr. fyrir eldri borgara og öryrkja, ókeypis fyrir nemendur og gesti 20 ára og yngri.

Klassík í Vatnsmýrinni er tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna – klassískrar deildar FÍH í samvinnu við Norræna húsið.