Katrín Matthíasdóttir – Listasýning


15:00

Velkomin á opnun listasýningar Katrínar Matthíasdóttur í anddyri Norræna hússins laugardaginn 14. janúar kl. 15:00.

Norræna húsið býður upp á léttar veitingar.

Inntak sýningar Katrínar Matthíasdóttur er af tvennum toga. Annars vegar portrett myndir af drengjunum hennar þremur og hins vegar myndir sem vísa til heimsváar,  misskiptingu, mengunnar og loftslagsbreytinga.  Drengirnir horfa á það sem betur mætti fara í heiminum, sjá vandamál sem lífsnauðsynlegt er að leysa til þess að tryggja framtíð barna okkar – allra barna.  Verkin eru áleitin og til þess falin að vekja áhorfandann til umhugsunar um sameiginlega ábyrgð okkar allra á framtíðinni. Undirtónn sýningarinnar er hvati til breytinga.

Heimasíða Katrínar: http://katrinmatth.wixsite.com/kata

Eitt verkið á sýningunni var fengið að láni frá Alþingi. Verkið var að tilefni Loftslagsgöngunnar í Reykjavík 2015, gefið þáverandi ríkisstjórn sem áminning og hvatning til aðgerða gegn loftslagsbreytingum. Verkið minnir áhorfandann á hin ógnvænlegu sannindi um hlýnun jarðar; það sýnir þrjú börn, tvö horfa á línuritið fræga sem lýsir aukningu koltvísýrings í andrúmslofti, það þriðja horfir á áhorfandann spyrjandi.

Katrín Matthíasdóttir 2015