JÓLAMARKAÐUR NORRÆNA HÚSSINS


14-17

JÓLAMARKAÐUR NORRÆNA HÚSSINS
2. desember kl. 14 – 17.

HÁKLASSA VISTVÆN HÖNNUN Í JÓLPAKKANN

Hönnuðir og handverksfólk kemur saman í Norræna húsinu og sýnir hvernig hægt er að skapa vandaðar og eftirsóttar vöru á vistvænan hátt.

Hönnuðir
Ingasol design – Nordic Angan – Usee – Sisters redesign – Blámáni – Basalt – Klassísk dönsk hönnun – Fánapokar – Í boði náttúrunnar – Guðrún Borghildur Ingvarsdóttir – E R L A – La Diva Rosa – VERANDI – Gentle North – Kolbrún- Guðrún Borghildur- Halldóra Bjarnadóttir – Sigurður Petersen – Gunnlaug Hannesdóttir – Áslaug Saja – Eva og Anna Sóley – As we grow ofl.

Vertu velkomin í huggulega og sjálfbæra stemningu í Norræna húsinu. Jólaglögg, tónlist, fróðleikur og innblástur.

-Barnabókasafn Norræna hússins býður upp á jólaföndur fyrir börn og glæsilegt leiksvæði.
-Fræðslufulltrúi frá Sorpu verður á svæðinu og veitir gestum og gangandi góð ráð um endurvinnslu.
-Við fáum Skjóðu, leiðindaskjóðu í heimsókn. En hún er tengiliður á milli Hulduheima og mannheima.
-Stúlknakór frá Barnaskólanum í Reykjavík syngur fyrir börnin á barnabókasafninu.

Gefðu umhverfisvæna jólagjöf sem eykur ímyndunarafl þess sem þiggur.

Munið að taka með ykkur reiðufé 🙂

Hér má sjá jóladagskrána Norræna hússins 1/12 – 20/12 í heild sinni.