Verið velkomin á einstakt tónlistarævintýri sem sameinar brenglaða takta frá Norðurpólnum, sveiflur suðurskautsmörgæsa, austræn maqam-hljómkerfi og vestrænar hljómsetningar, hljóð úr iðrum jarðar og frá fjarlægum vetrarbrautum. Heitt sem glóandi hraun, svalt sem Norður-Íshafið.
Kari Ikonen – hljóðgervlar, rödd og leikföng Haukur Gröndal – klarínettur, bassett-horn, raftónlist
„Kari Ikonen er sannkallaður frumkvöðull í djassheimi samtímans.“ – New York City Jazz Record