Í síkvikri mótun: Vitund og náttúra


Í SÍKVIKRI MÓTUN: VITUND OG NÁTTÚRA
Kinaassuseq allanngujasoq – pinngortitaq allanngorartoq
Flydende identitet, natur i omformning
Flótandi samleiki, náttúra í broyting
Nature in transition – Shifting identities

Opnun 17.apríl 2021.

Sýningarskrá

Sýningin Í síkvikri mótun: vitund og náttúra varpar fram svipmyndum af upplifunum, hugleiðingum og rannsóknum listamanna á sviði myndlistar, tónlistar, hönnunar og sviðslista, sem búa á hinum síkvika útjaðri norðursins. Náttúran mótar manngert umhverfi og hið manngerða hefur áhrif á náttúruna; hvort tveggja nú í eins konar hröðun sem okkur rekur ekki minni til að hafi átt sér stað áður. Stefnumót þjóðanna fjögurra minnir á mikilvæg og margslungin söguleg samskipti sem hafa mótað menningu og samfélög landanna. Umbreytingar kalla á endurskoðun fyrri viðhorfa, rýni í vitund og sjálfsmynd okkar sem einstaklinga jafnt sem þjóða. Það er orsakasamhengi á milli gjörða okkar og atburða í náttúrunni; og öfugt: undir hinum langa boga náttúruafla eru einstök líf, einstök samfélög, einstakar sögur. Atburðir á Íslandi síðustu vikur, mánuði og ár minna okkur á að það er ekki stöðugleikinn sem er eðlilegt ástand, heldur hin stöðuga umbreyting alls; náttúru, manna og samfélaga.

Á sýningunni eiga verk Berglind María Tómasdóttir, Bryndís Snæbjörnsdóttir & Mark Wilson, Emilie Dalum & Michael Richardt, Inuuteq Storch, Jóhan Martin Christiansen, Ólöf Nordal, Tinna Gunnarsdóttir, Rikke Luther og Thomas Pausz. Með þátttöku: Ana Luisa S. Diaz De Cossio og Khetsin Chuchan

Sýningarstjórar eru Hanna Styrmisdóttir og Hulda Stefánsdóttir

Sýningin er samstarfsverkefni Listaháskóla Íslands og Norræna hússins í Reykjavík og er framlag Listaháskólans til ráðstefnu UArctic (Háskóla Norðurslóða) sem verður haldin í Reykjavík í maí 2021 í tilefni af formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu. Verkefnið hefur hlotið styrki úr verkefnasjóði um samvinnu á Norðurslóðum á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar (Nordic Council of Ministers ) og Norræna menningarsjóðnum (Nordisk Kulturfond). Nemendur í námskeiði í sýningagerð og sýningastjórnun við Listaháskóla Íslands tóku þátt í gerð þessarar sýningar.

Hvelfing, sýningarrými Norræna hússins, er opin þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17.