Hvernig ég komst í sprengjubyrgið


Hvelfing
Aðgangur ókeypis

SKOÐA SÝNINGARSKRÁ

 

Hvernig ég komst í sprengjubyrgið 

er þverfagleg sýning sjö úkraínskra listamanna í Norræna húsinu, sýningarstjóri er Yulia Sapiha. Í sýningunni kafa listamennirnir djúpt ofan í eigin reynslu af stríðinu, þrána eftir friðsælu lífi, leiðina til þess að þrauka af og vonina um framtíðina.

How did I get to the bombshelter opnar 4. febrúar kl 16:00 í sýningarsal Norræna hússins og stendur fram í maí 2023. 

Listamenn sýningarinnar eru: Kinder Album (b. 1982), Mykhaylo Barabash (b. 1980), Jaroslav Kostenko (b. 1989), Sergiy Petlyuk (b. 1981), Elena Subach (b. 1980), Art Group Sviter (b. 1982), Maxim Finogeev (b. 1989).

Sýningarstjóri: Yuliia Sapiga
Grafísk hönnun: Olenka Zahorodnyk