Heiða Árnadóttir – Myrkir músíkdagar 2020


20.00

Heiða Árnadóttir flytur verk sem sérstaklega voru samin fyrir hana eftir tónskáldin Þórönnu Dögg Björnsdóttur, Birgit Djupedal, Guðmund Stein Gunnarsson og Þórunni Björnsdóttur. Verkin hverfast um efa og óvissu, einfaldleika og ferðalag, í leit að sjálfinu.

Ragnheiður (Heiða) Árnadóttir lauk mastersnámi í söng við Konunglega Tónlistarháskólann í Den Haag í Hollandi. Heiða hefur haldið tónleika víðsvegar um Evrópu, meðal annars í djass-, þjóðlaga-, tilrauna-, ljóða- og nútímatónlist. Heiða hefur einnig haldið fjölda tónleika á Íslandi meðal annars með hljómsveitinni Mógil, flutt ný verk með Ensemble Adapter, Caput og unnið með tónskáldunum í S.L.Á.T.U.R. Heiða hefur einnig gefið út fjóra geisladiska með hljómsveit sinni Mógil, diskana “Ró” 2008, “Í stillunni hljómar” 2011, “Korriró” 2015 og „Aðventa“ 2019. Heiða er staðarlistamaður Myrkra Músíkdaga 2020-2022.

https://soundcloud.com/mogil

Við viljum vekja athygli á að hægt er að kaupa 3 eða fleiri miða á tónleika Myrkra músíkdaga á Tix.is með 20 % afslætti.