GYDA TÓNLEIKARÖÐ NORRÆNA HÚSSINS


21:00

Miðasala

Gyða Valtýsdóttir náði fyrst athygli á heimsvísu með tilraunakenndu og nánast goðsagnakenndu raftónlistarsveitinni múm. Hún hætti í hljómsveitinni til klára sellónám og eignaðist tvískipta mastersgráðu frá Musik Akademie í Basel í bæði klassískum hljóðfæraleik og spuna. Báðar sólóplötur hennarþær Epicycle og Evolution – fengu verðlaun fyrir bestu plötur í opnum flokki á Íslensku tónlistarverðlaununum. Stórbrotin tónlist sem sýnir margar hliðar sellósins. 

Spotify

Tónleikaröð Norræna hússins fer fram í þriðja skipti í sumar með fjölbreyttri dagskrá og áhugaverðum tónlistarmönnum. Þetta ár kynnum við  fjögur atriði frá hinum Norðurlöndunum ásamt sex íslenskum atriðum. Tónleikaröðin inniheldur eitthvað fyrir alla; þjóðlagatónlist, djass, klassík og popp.

Tónleikaröð Norræna hússins sumarið 2019

12. júní Ragnheiður Gröndal
19. júní Tómas R. Einarsson
26. júní Teitur (FO)
3. júlí Geir Draugsvoll & Mette Rasmussen (NO)
10. júlí GYDA
17. júlí Mattias Nilsson (SE)
24. júlí  Svavar Knútur
31. júlí Mirja Klippel (FI) & Alex Jonsson (DK)
7. ágúst Einar Scheving
14. ágúst ADHD

Veitingastaðurinn AALTO Bistro í Norræna húsinu hefur opið fyrir matargesti fyrir tónleikana og býður upp á ljúffengan kvöldverð, smárétti og aðrar veitingar úr fyrsta flokks hráefni. Panta borð

Viðburðadagatal Norræna hússins