black and white photo taken from above of the Nordic house. A strange creature photoshopped hoovering above the building

Gjörningur með Linda Boļšakova 


15:00
Hvelfing
Aðgangur ókeypis

Velkomin á gjörning listakonunnar Linda Boļšakova.
Sunnudag 7 júní, kl 15:00 – í kjölfarið á leiðsögn sýningarstjóra.

„Þetta er óður til þeirra sem brotna niður, þeirra sem fara í myrkrið, hinna óframleiðnu, uppurnu, hægu og skrítnu.“

Linda Boļšakova á verkið Ode to the Swamped á sýningunni Himna, sem nú stendur yfir í Hvelfingu.
Boļšakova rannsakar tengsl manna við umhverfið og dregur fram hliðstæður milli mannlegra og ómannlegra líkamsmynda. Verk hennar leitast við að afhjúpa tengsl og stuðla að sterkari tilfinningu fyrir tilheyrandi vistkerfum og hinum víðfeðma samfélagi lífvera sem deila jörðinni. Hún leitast einnig við að skapa rými fyrir samkennd og rækta sjálfbærni. Vinna hennar mótast af hlutbundinni verufræði, nýefnisstefnu, ecofeminisma og viðurkennir virkni og hlutfallslegt jafnræði efna og annarra ómannlegra þátta.