Framtíðarhorfur nýtingar jarðvarma


12:00

Ladislaus Rybach: Framtíðarhorfur nýtingar jarðvarma

Opinn fundur á vegum þverfræðilegs náms í umhverfis- og auðlindafræðum.

Ladislaus Rybach er einn fremsti vísindamaður í heimi hvað varðar nýtingu jarðvarma. Hann hefur lagt áherslu á umhverfismál sem og sjálfbærni í tengslum við jarðvarmavirkjanir. Hann hefur birt yfir 400 ritrýndar greinar og fjölmargar kennslubækur og hefur stundað rannsóknir og kennslu um allan heim, meðal annars á Íslandi.

Rybach er prófessor emeritus við ETH Zurich og stofnandi og fyrrum forstöðumaður GEOWATT AG Zurich (nú vísindalegur ráðgjafi) og var að auki forseti International Geothermal Association.

Í erindi sínu mun Rybach fjalla um framtíðarhorfur á nýtingu jarðvarma, bæði beinni og óbeinni, með sérstaka áherslu á þá tækniþróun sem verða þarf til að auka nýtingu. Sjá nánari lýsingu á ensku.

Fundurinn fer fram á ensku. Allir velkomnir.