Fjölskyldu miðvikudagar með Svaninum: Netverslanir og neytendur
10:30
Velkomin á fjölskyldu- og fræðslumiðvikudaga í samstarfi við Svaninn á Íslandi.
Sífellt fleiri reiða sig á netverslarnir til að næla sér í ýmsan varning. Á þessum fræðslufundi verður fjallað um helstu atriði sem vert er að hafa í huga þegar verslað er á netinu, hvað ber að varast og hverju má treysta. Fyrirlesari er Birgitta Stefánsdóttir, sérfræðingur hjá Svaninum á Íslandi.
Börn eru velkomin með á kynninguna sem fer fram á barnabókasafni Norræna hússins. Hægt er að leika sér í skemmtilegu Línu Langsokk sýningunni “Lína, lýðræðið og raddir barna”, þar er ævintýrahús og búningar!
Plantan bístró er með sérstakan Línu matseðil og tilboð fyrir börnin á meðan á viðburði stendur.
Velkomin!
Aðgengi: Gengið er niður stiga frá bókasafni og aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf. Ókeypis er inná alla viðburði á vegum Norræna hússins.