Einar Scheving TÓNLEIKARÖÐ NORRÆNA HÚSSINS


21:00

Miðasala

Einar Scheving er trommari og tónskáld. Hann er burðarstólpi í tónlistarsenunni á Íslandi og hefur hann unnið Íslensku tónlistarverðlaunin þrisvar sinnum, tvisvar fyrir bestu plötu ársins: Cycles árið 2007 og Land míns föður 2011. Á tónleikaröð Norræna hússins kemur Einar fram með kvartett sínum, sem samanstendur af nokkrum af markverðustu tónlistarmönnum Íslands – Skúla Sverrissyni, Eyþóri Gunnarssyni og Óskari Guðjónssyni. Munu þeir félagar prufukeyra nýtt efni eftir Einar, sem væntanlegt er á næstu breiðskífu kvartettsins. Ekki er við öðru að búast en að kvöldið verði eftirminnilegt.

Spotify

Tónleikaröð Norræna hússins fer fram í þriðja skipti í sumar með fjölbreyttri dagskrá og áhugaverðum tónlistarmönnum. Þetta ár kynnum við  fjögur atriði frá hinum Norðurlöndunum ásamt sex íslenskum atriðum. Tónleikaröðin inniheldur eitthvað fyrir alla; þjóðlagatónlist, djass, klassík og popp.

Tónleikaröð Norræna hússins sumarið 2019

12. júní Ragnheiður Gröndal
19. júní Tómas R. Einarsson
26. júní Teitur (FO)
3. júlí Geir Draugsvoll & Mette Rasmussen (NO)
10. júlí GYDA
17. júlí Mattias Nilsson (SE)
24. júlí  Svavar Knútur
31. júlí Mirja Klippel (FI) & Alex Jonsson (DK)
7. ágúst Einar Scheving
14. ágúst ADHD

Veitingastaðurinn AALTO Bistro í Norræna húsinu hefur opið fyrir matargesti fyrir tónleikana og býður upp á ljúffengan kvöldverð, smárétti og aðrar veitingar úr fyrsta flokks hráefni. Panta borð

Viðburðadagatal Norræna hússins