Connecting Iceland- ART TALK


19:00

Connecting Iceland- ART TALK

Listamanna hópurinn Swedish material makers sýnir í anddyri Norræna hússins 9.- 13. mars.  Þann 11. mars kl 19:00 er hópurinn með ART TALK, fjórar stuttar kynningar á listhandverki á hverju sviði fyrir sig; gleri, keramik, textíl og skarti.

Fyrirlesturinn fer fram á ensku og eru allir velkomnir. Frítt inn.

Swedish material makers

Hópurinn samanstendur af átta hönnuðum sem vinna með gler, keramik, textíl og skart. Þau hafa sýnt verk sín víða á alþjóðlegum sýningum en þetta er í fyrsta skipti sem þau koma til Íslands.

Heimasíða: Swedish material makers

Viðburður: https://www.facebook.com/events/208337089506686/