Brontis Jodorowsky Meistaraspjall- Riff


17:00

Brontis Jodorowsky  Meistaraspjall

1 Oktober

17:00

Meistarastpjall með Brontis Jodorowsky verður haldið á vegum Riff í Norræna húsinu.

Jodorowski er heiðursleikstjóri RIFF í ár en hann hefur á fjölbreyttum ferli sínum leikstýrt leikritum, skrifað teiknimyndasögur, ljóð og skáldsögur – og einnig orðið einskonar “síkómagískur” gúrú. Þó er hann auðvitað þekktastur fyrir framlag sitt til kvikmyndalistarinnar en hann er undir sterkum áhrifum frá súrrealískri list, austurlenskum spíritisma, vestrænni sækadelíu, grótesku myndmáli, hinu yfirnáttúrulega og hinu dulræna.

Jodorowsky átti því miður ekki heimangengt á hátíðina af heilsufarsástæðum, en sonur hans, Brontis Jodorowsky, kemur í hans stað. Hann hefur unnið mikið með föður sínum og lék meðal annars í myndinni El Topo frá árinu 1970. Brontis heldur meistaraspjall í tengslum við sýningar á nýjustu myndum föður síns; Endless Poetry og Dance of Reality. Þær eru fyrstu myndirnar í fimm mynda seríu sem hann hyggst gera með kvikmyndaendurminningum sem byggja á ævi hans.

Ókeypis aðgangur. Umræður fara fram á ensku.