Blátt hraun & fleiri undur – vinnustofa


13.00-15.00
Barnabókasafn & Hvelfing
Aðgangur ókeypis
Hefur þú gengið undir jörðinni eða skíðað í loftinu?

Myndlistarmaðurinn Anna Líndal segir frá sinni reynslu í skemmtilegri vinnustofu fyrir ungmenni, börn og fjölskyldur. Vinnustofan hefst hjá nýju verki hennar sem fjallar um eldgosið í Fagradalsfjalli og er á yfirstandandi myndlistar sýningu Norræna hússins sem ber heitið TIME MATTER REMAINS TROUBLE.

Þar fá gestir innsýn í verkið og ævintýrin sem því fylgir áður en haldið er á barnabókasafnið þar sem hægt er að skapa eigin verk undir handleiðslu Önnu Líndal.

Vinnustofan er gestum að kostnaðarlausu og eru allir velkomnir!

Anna hefur tekið þátt í fjölda innlendra og erlendra sýninga, haft fumkvæði að rannsóknar- og sýningarverkefnum, tekið þátt í ráðstefnum og haldið fjölmörg erindi um fagið. Hún útskrifaðist frá Myndlista- og Handíðaskóla Íslands árið 1985 og lauk framhaldsnámi frá The Slade School of Fine Art í London árið 1990 og MA í Listrannsóknum frá St Lucas, University College of Art & Design, Antwerpen 2012. Anna var prófessor við myndlistardeild Listaháskóla Íslands frá árinu 2000–2009.

Skráning með nafni og kennitölu á hrafnhildur@nordichouse.is