Barnabarinn – mjúk opnun
17.00 - 19.00
Anddyri
Krakkaveldi býður fullorðnum og börnum á barinn! Á Barnabarnum ráða krakkarnir öllu og prófa hugmyndir sem hafa komið upp í vikulegum smiðjum Krakkaveldis í Norræna Húsinu.
Á mjúkri opnun Barnabarsins á fimmtudag verður boðið upp á kokteila, slökun, trúnó og kynningu á hugmyndum meðlima Krakkaveldis um þennan óhefðbundna bar sem starfræktur verður í húsinu í allan vetur.
Aðgangur er ókeypis og gestir á öllum aldri velkomnir.
Barnabar Krakkaveldis nýtur styrks frá Barnamenningarsjóði Íslands og Nordisk Kultur Fund.