AUÐUR NORÐURSINS – 2. ÞÁTTUR. Til hvers list? Harpa Þórsdóttir


11:00

Norræni menningarþátturinn sem enginn er að bíða eftir

Auður & Arnbjörg kryfja málefni líðandi stundar og liðinna alda í séríslensku samnorrænu alheimssamhengi ásamt vel völdum misgóðum gestum.

Í þessum öðrum þætti af Auði norðursins ræða þær við Hörpu Þórsdóttur safnstjóra Listasafns Íslands um tilgang listarinnar. Ingi Bjarni Skúlason húspíanisti þáttarins flytur tónlistarinnslög.

AUÐUR NORÐURSINS er oftast á dagskrá á miðvikudögum kl. 11.00.
Hægt er að horfa á þáttinn á vef og Facebook- síðu Norræna hússins.