Arctic Concerts- Miké Thomsen


20:30

Kaupa miða 

Arctic Concerts er ný tónleikaröð í Norræna húsinu

Á fimmtudögum kl 20:30 í allt sumar

Arctic Concerts tónleikaröðin er ætluð áhugasömum ferðamönnum, ekki síður en íslenskum  tónlistarunnendum sem vilja kynnast íslenskri og norrænni  tónlist og flytjendum hennar, í einstakri nánd og vinalegu umhverfi.

Tónlistarmaður kvöldsins: Miké Thomsen

Miké Fencker Thomsen er af yngri kynslóð Grænlendinga, fæddur í Ilulissat en búsettur í Nuuk. Hann er einstakur sviðslistamaður, söngvari og leikari og kraftmikill fulltrúi ungra Inuita á Grænlandi. Tónlist Miké hefur sterkar rætur í Grænlenskri menningu, trommudans og sagnahefð en hún er líka nátengd nýjustu stefnum og alþjóðlegum straumum.

Hróður Miké hefur borist langt út fyrir strendur Grænlands. Hann hefur starfað talsvert á norðurlöndunum, með Færeysku hljómsveitinni Iggdrasil og verið á samningi hjá leikhúsum í Þýskalandi og Danmörku. Mike tók þátt í uppfærslu á Óperu Önnu Þorvaldsdóttur UR_ sem sýnd var á Listahátíð í Reykjavík, laugardaginn 4. júní.

Það er okkur sérstakur heiður að bjóða uppá Arctic Concert með Miké Thomson fimmtudaginn 23. júní kl. 20.30

12249794_10208159340440024_6032876385941204748_n

 

Aðgangseyrir: 2.500 kr.

Undir merki Arctic Concerts falla allir stílar og tónlistarstefnur;  klassík, jazz,  þjóðlög og fjölbreytt dægurtónlist. Vandaður flutningur og framsetning er aðalsmerki verkefnisins enda flytjendur úr fremstu röð einleikara, einsöngvara og hljómsveita.

Tónleikar Arctic Concerts eru um klukkutíma langir og er efnisskrá og framsetning alfarið í höndum flytjenda hverju sinni. Flytjendur verða tilkynntir vikulega,  fylgist með!

Kvöldverður og tónleikar

Aalto Bistro býður upp á sérstakan matseðil fyrir tónleikana.  Aalto Bistro er opið á fimmtudögum til kl. 21.30. bóka borð

Það er von okkar sem stöndum að Arctic Concerts að röðin verði kærkomin viðbót við menningarflóru landsins, gluggi inn í litríkan tónlistarheim norðursins.

Það er Tóney sem stendur að Arctic Concerts röðinni í samstarfi við Norræana húsið en faglegur stjórnandi er Guðni Franzson tónlistarmaður.