Arctic Concerts – Sölvi Kolbeinsson


20:30

Kaupa miða 

Arctic Concerts er ný tónleikaröð í Norræna húsinu

Á fimmtudögum kl 20:30 í allt sumar

Arctic Concerts tónleikaröðin er ætluð áhugasömum ferðamönnum, ekki síður en íslenskum  tónlistarunnendum sem vilja kynnast íslenskri og norrænni  tónlist og flytjendum hennar, í einstakri nánd og vinalegu umhverfi.

Sölvi Kolbeinsson er einhver efnilegasti hljóðfæraleikari yngstu kynslóðar íslenskra tónlistarmanna.  Hann er afburða saxafónleikari hvort sem er í jazz eða klassískum stíl.  Sölvi hefur unnið til fjölda viðurkenninga þ.m. Íslensku Tónlistarverðlaunanna 2016 en stundar nú framhaldsnám í Berlín.  Hann kemur fram á Arctic Concerts með Camus kvartett þar sem spila; Rögnvaldur Borgþórson á gítar, Óskar Kjartanson á trommur og Birgir Steinn á bassa.

 

Aðgangseyrir: 2.500 kr.

Undir merki Arctic Concerts falla allir stílar og tónlistarstefnur;  klassík, jazz,  þjóðlög og fjölbreytt dægurtónlist. Vandaður flutningur og framsetning er aðalsmerki verkefnisins enda flytjendur úr fremstu röð einleikara, einsöngvara og hljómsveita.

07.7. KK söngvari/lagasmiður – blönduð tónlist

14.7. Arctic Broken Consort – blönduð tónlist

21.7. Sunna Gunnlaugsdóttir- jazz

28.7. Funi – þjóðlagatónlist

04.8. Hallveig Rúnarsdóttir & Jóhannes Andreasen – sönglög

11.8. Svavar Knútur – trúbador

18.8. Sölvi Kolbeinsson- jazz

25.8. Svafa Þórhallsdóttir- sönglög

Kvöldverður og tónleikar

Aalto Bistro býður upp á sérstakan matseðil fyrir tónleikana.  Aalto Bistro er opið á fimmtudögum til kl. 21.30. bóka borð

Það er von okkar sem stöndum að Arctic Concerts að röðin verði kærkomin viðbót við menningarflóru landsins, gluggi inn í litríkan tónlistarheim norðursins.

Það er Tóney sem stendur að Arctic Concerts röðinni í samstarfi við Norræana húsið en faglegur stjórnandi er Guðni Franzson tónlistarmaður.

Málverk: Georg Guðni, 2001.