Á að fórna náttúruperlum fyrir ósjálfbærar jarðgufuvirkjanir? – Málstefna


16:30

Á að fórna náttúruperlum fyrir ósjálfbærar jarðgufuvirkjanir? – Málstefna

Málstefna NSVE 6. apríl í Norræna húsinu kl. 16:30. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands (NSVE) halda málstefnu í Norræna húsinu síðdegis miðvikudaginn 6. apríl 2016. Þar verður m.a. fjallað um gildi landslags á Reykjanesi og hve framkvæmdir geta spillt

upplifun þess sem þar vill njóta náttúrunnar í sem upprunalegastri mynd. Sýndar verða myndir af ýmsum náttúrperlum svæðisins sem sumum hverjum verður e.t.v. gjörbreytt á næstunni. Fjallað verður um hugsanlegar afleiðingar af nýtingu háhitasvæða til raforkuframleiðslu og takmörk varanleika þeirra. Efnisflytjendur hafa, hver á sínu sviði, rannsakað þessi mál vandlega. Benda má á að í tímaritinu Náttúrufræðingurinn 82. árg. 1.- 4. hefti 2012 er greinin „Eðli og endurnýjanleiki jarðvarmakerfa“ eftir Stefán Arnórsson. Þar leiðir Stefán líkur að því að skoða megi háhitasvæði sem námur en ekki óendanlegar orkulindir einkum ef ekki er gætt hófs í nýtingu.

Dagskrá málstefnunnar:

Kl. 16:30 setning: Helena Mjöll Jóhannsdóttir formaður NSVE.

Menningarsögulegt gildi landslags

Fyrirlesari Birna Lárusdóttir, fornleifafræðingur. Meðhöf. Gísli Pálsson, fornleifafræðingur.

Fagurferðilegt gildi landslags Fyrirlesari Edda R. H. Waage, lektor í land- og ferðamálafræði HÍ.

Meðhöf. Guðbjörg R. Jóhannesdóttir, nýdoktor, heimspekist. HÍ.

Kl. 17:15

Náttúruperlur í hættu á Reykjanesskaga

Ellert Grétarsson, náttúruljósmyndari, sýnir myndefni frá

Eldvörpum og Krýsuvík.

Kl. 17:55

Þróun háhitakerfa og umhverfisáhrif nýtingar

Höfundur og fyrirlesari dr. Stefán Arnórsson jarðhitasérfræðingur og fv. prófessor við HÍ.

Kl. 18:40 verður pallborð þar sem flytjendur svara spurningum fundargesta.

 

Salurinn verður opinn frá kl. 16:00 og málstefnunni lýkur um kl. 19:10.

Fundarstjóri: Eydís Franzdóttir / Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

http://nsve.is/