50 ára afmæli Norræna hússins


10-23

Norræna húsið fagnar 50 ára starfsafmæli sínu í ár og mun af gefnu tilefni bjóða landsmönnum í sannkallaða norræna menningarveislu laugardaginn  25. ágúst 2018

Boðið verður upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna með leikjum, lifandi tónlist, sánabaði, sögusýningu, matar smakki og margt margt fleira. Um kvöldið verður boðið upp á útitónleika með grænlensku popphljómsveitinni Nanook og norsku hip-hop stjörnunni Miss Tati. Frítt er inn á hátíðina og sala á mat og drykk verður í höndum matarvagna á svæðinu. Hátíðarhöldin hefjast kl. 10:00 með fríum morgunverði í stóru tjaldi fyrir utan Norræna húsið.

Kynnir og  stjórnandi leikja er Sigyn Blöndal umsjónarmaður Stundinnar okkar

 

Dagskráin  25. ágúst 

10.00– 11.30  Morgunverður fyrir alla í garðinum/tjaldinu

Hvernig er best að koma í veg fyrir matarsóun? Fyrirtækin Brauð og co. og Krónan sýna okkur eitt og annað.

10.30 – 14.00 Norrænir leikir undir stjórn Sigyn Blöndal, Fjölskyldujóga með Evu Dögg, Bíó, andlitsmálning, norskar skonsur of.

14.00– 16.00  Tónleikar – Ungt og hæfileikaríkt tónlistarfólk spilar á stóra sviðinu.  RuGl, Gróa og Flóni. 

16.00 – 16:15  Vígsla á nýrri bryggju í vatnsmýrinni sem er gjöf frá Reykjavíkurborg.

16.15 – 16.45 Nanook spila órafmangaðir á brúnni/gróðurhúsinu.

17.00 – 19:00  Barinn opnar í hátíðartjaldinu, Pub Quiz með Arnari Eggerti og Nordic Playlist

19.00 – 22.30 Tónleikar á stóra sviðinu – Nanook, Miss Tati og SEINT.

 

Kynnir kvöldins er tónlistarsérfræðingurinn Arnar Eggert Thoroddsen

Önnur afþreying

  • Finnskt saunabað úti í garði –  takið með sundföt og handklæði!!!
  • Barnabíó í Norræna húsinu -Ronja Ræningjadóttir og Bróðir minn Ljónshjarta
  • Sýningarsalur Innblásið af Aalto – Hönnun frá Finnlandi
  • Black Box  50 minnigar – Það besta úr safni Norræna hússins
  • Anddyri North of Normal – svipmyndir frá Norðurlöndunum.
  • Matarvagnar Gastro truck, Rabbabari, ísbíllinn og Fish & chips Wagon
  • AALTO Bistro veitingarstaður Norræna hússins
  • Barnabókasafn föndur, spil, kubbar, búningar o.fl.
  • Andlitsmálning fyrir alla konur, krakka og kalla

 

Tónleikar Norræna hússins verða haldnir á stóru sviði á túninu fyrir framan húsið

kl. 14:00 – 16:00
Fyrstar stíga á stokk ungar og upprennandi stjörnur Gróa, Flóni og RuGl.

RuGl spiluðu á lokaúrslitakvöldi Músiktilrauna árið 2016 og vakti athygli fyrir samspil og raddir. Meðlimir RuGL sækja innblástur sinn í mjúka og melódíska Indie tónlist og þykja textar sveitarinnar áleitnir. Hljómsveitin var stofnuð snemma árs 2016 af tveimur 14 ára stelpum úr vesturbænum í Reykjavík.

Flóni Er tvítugur rappari frá Reykjavík sem kom með hvelli inn í íslensku rapp-senuna með lögum sem trónuðu í efstu sætum Spotify listans hérlendis. Margir ungir rapparar eru að vekja athygli þessi misserin og hefur gróskan sjaldan verið meiri í rappheiminum á Íslandi.
Látið ykkur hlakka til að hlýða á Flóna sem þekktur er fyrir magnaða sviðsframkomu sína.

Hljómsveitina GRÓA skipa þær Fríða Björg Pétursdóttir, Hrafnhildur Einarsdóttir og Karólína Einarsdóttir. GRÓA varð til í tengslum við verkefnið Stelpur rokka og tóku þær þátt í Músíktilraunum í kjölfarið. Tónlist þeirra þykir „vel útsett og vel hljómandi“ eins og einn gagnrýnandinn orðaði það; hress og nýstárleg og hljómur hennar spennandi.

kl. 19.00 – 22.30

Seinni tónleikar Norræna hússins hefjast kl. 19:00.  Þar koma fram grænlenska poppsveitin Nanook, norska hip hop stjarnan Miss Tati og íslenski raftónlistarmaðurinn SEINT.

Hljómsveitin Nanook er eitt helsta tónlistarundur sem komið hefur frá Grænlandi í seinni tíð. Með úthugsuðum tónsmíðum og útsetningum og ekki síst sem starfandi tónlistarfólk hafa meðlimir hennar skapað nýjan hljóm og stíl sem er í algjörum sérflokki í Grænlandi. Bræðurnir Frederik og Christian Elsner standa í framlínunni og eru mögnuð sjón þegar hljómsveitin flytur tónlist sína á stórum sviðum með Martin Zinck á trommur, Andreas Otte á bassa og Mads Røn á hljómborð. Hljómsveitin hefur slegið í gegn á Grænlandi, Danmörku, Ameriku og í Japan. Tónlist þeirra er rokkskotin og allir textar á grænlensku.

Miss Tati er fædd í Portúgal árið 1986 og er af angólskum uppruna. Hún ólst upp í borginni Setúbal en flutti seinna með fjölskyldu sinni til Bergen í Noregi. Í tónlistinni má greina sterk áhrif frá hiphop-tónlist, sálar-tónlist, fönki og R&B-tónlist. Hún hefur vakið athygli á alþjóðlegum vettvangi og hlotið lof gagnrýnenda um allan heim. Miss Tati hefur einstaklega heillandi sviðsframkomu, sterkan stíl og býður upp á kraftmikinn flutning á ný-sálar popptónlist sem allir geta dillað sér við.

SEINT er Framtíðarkennt electrónískt popp frá Reykjavík stofnað af Joseph Cosmo. Nýverið kom platan “The World is Not Enough“ út á spotify með góðum undirtektum. En það mun vera önnur platan í fullri lengd sem kemur frá verkefninu. Melankólískt andrúmsloft í bland í við mellódíur og fastan takt lýsir SEINT best.

 

 

Tóndæmi

 

 

 

 

 

 

Styrktar- og samstarfsaðilar

        

Norræna húsið er stoltur aðili að puls hópnum og hefur fengið fjármögnun frá Norræna menningarsjóðnum til að kynna lifandi norræna tónlist á Norðurlöndum

Facebook viðburður