Geta borgir verið sjálfbærar? -Streymi


14:00-16:45

Geta borgir verið sjálfbærar?

Norræn ráðstefnuröð/ Norræna húsinu / 23. maí, 2016

 Streymi



Skráning hér (https://tix.is/en/nordichouse/). Þátttaka er ókeypis. Dagskráin er á ensku.

Á hverju ári gefa alþjóðlegu umhverfissamtökin WorldWatch Institute (http://www.worldwatch.org/) út bók (State of the World Report) þar sem farið er yfir þau umhverfismál sem efst eru á baugi í heiminum hverju sinni. Til að hvetja til umræðu og miðlunar nýrra lausna í tengslum við þema ársins 2016 – getur borg verið sjálfbær? – hratt WorldWatch Instutute af stað norrænni ráðstefnuröð sem fram fer í höfuðborgum Norðurlandanna nú í maí. Fjórða og síðasta ráðstefnan fer fram í Norræna húsinu í Reykjavík 23. maí nk. kl. 14:00-16:45.

Ráðstefnan er samstarfsverkefni Norrænu ráðherranefndarinnar, WorldWatch Institute í Evrópu, Norræna hússins og Reykjavíkurborgar. Ráðstefnan mun taka fyrir bæði almenna þróun og dæmi um grænar lausnir í arkitektúr, byggingariðnaði, skipulags- og samgöngumálum í Evrópu, á Norðurlöndunum og á Íslandi.

 

Dagskrá: 23. maí 2016 / 14:00-16:45         

14.00 – 14.05       Opnunarávarp

14.05 -14.15       Getur borg verið sjálfbær? State of the World Report 2016, Stephanie Loveless, WorldWatch Institute Europe

14.15 – 14.30      Í átt að minni kolefnanotkun í Evrópusambandinu, Peter Vangsbo, viðskiptaþróun fyrir Climate-KIC Nordic

14.30 – 14.45      Hvernig hönnum við sjálfbærari borg? Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar

14.45 – 15.00      Getur fyrirtækjarekstur verið sjálfbær? Ketill B. Magnússon, framkvæmdastjóri FESTU

15.00 – 15.15      Pallborðsumræður undir stjórn Auðar H. Ingólfsdóttur, lektors við Háskólann á Bifröst               

15.15 – 15.30       Kaffihlé

15.30 – 15.45      Þátttökulýðræði í skipulagsmálum: dæmi frá Norðurlöndum, Liisa Perjo, Sérfræðingur hjá Nordregio

15.45 – 16.00       Nordic Built samkeppnin í Kópavogi 2016, Árni Geirsson ráðgjafi hjá Alta

16.00 – 16.15      Nýjungar í skipulagsmálum í Reykjavík, Þorsteinn R. Hermannsson, samgöngustjóri á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar

16.15 – 16.30      Pallborðsumræður undir stjórn Kristínar Lindu Árnadóttur, forstjóra Umhverfisstofnunar

16.30 – 16.45      Samantekt og lokaorð

 

 State of the World Report 2016

Í bókinni kynnast lesendur mikilvægustu áskorunum sem borgir og bæjarfélög um allan heim eiga við að etja í umhverfismálum og fjölda dæma um frábærar lausnir til að stuðla að sjálfbærari samfélögum.

Hér má finna nánari upplýsingar um bókina: https://canacitybesustainable.org/home-page/about/book/

Nánari upplýsingar veitir:
Kristín Ingvarsdóttir
kristini@nordichouse.is
Sími: 551-7032