Krákan situr á steini: Komdu að syngja og dansa við norræn þjóðlög


10:15-11:15

Viltu eiga notalega stund med barninu þínu á tónlistarnámskeiði á Bókasafni Norræna hússins? Diljá Sigursveinsdóttir, tónlistarkennari, söngkona og fiðluleikari leiðir námskeið fyrir ung börn (frá 3ja mánaða til 6 ára) og fjölskyldur þeirra dagana 26. mars, 2. apríl, 16. apríl og 30. apríl 2019 kl. 10:15-11:15.

Markmið námskeiðsins er að kynna norræn þjóðlög fyrir barnafjölskyldum og vekja áhuga þeirra á söng og hreyfingu ásamt því að hvetja foreldra til að nota söng og tónlist í daglegu uppeldi og umönnun barna sinna. Þátttaka á námskeiðið er ókeypis en það er takmarkað pláss.

Skráningar er krafist og sendast til telma@nordichouse.is.