Nýtt ár, nýir tímar

Lista- og menningarstofnanir gegna mikilvægu samfélagslegu hlutverki. Rými listarinnar eiga að vera staðir opnir öllum þar sem fólk hefur möguleika á að eiga við og ræða mikilvæg málefni á  fordómalausan máta. Í gegnum listir og menningu birtast hlutir okkur í nýju og skýrara ljósi, listir og menning koma umræðum af stað og spyrja spurninga og fólk færist gjarnan nær hvort öðru. Til þess að menningarstofnanir geti talist opnar öllum þurfum við að grandskoða bæði starfsemi og innviði. Við eigum að skipuleggja lista- og menningardagskrá okkar þannig að minnihlutahópar og nýir Norðurlandahópar séu sýnilegir, við eigum að leitast til að ná til sem breiðs hóps í gegnum miðlana okkar og framar öllu þá verðum við að gjörbreyta innviðunum í stofnunum okkar og sjá til þess að þeir spegli norrænt þjóðfélag.

Kulturanalys Norden sendi frá sér skýrsluna Kultur med olika bakgrund (ísl: menning með ólíkan bakgrunn) árið 2017 en hún sýnir að hugmyndin um fjölbreytileika er til staðar í starfsemi ríkisrekinna menningarstofnana á Norðurlöndunum en nánari athugun sýnir að hlutfall starfsmanna stofnananna sem hafa erlendan bakgrunn er í engu samræmi við hvert hlutfall íbúa með erlendan bakgrunn er í löndunum á heildina litið. Það starfsfólk sem hefur erlendan bakgrunn hefur oftast nær bakgrunn í vestrænum löndum og hlutföllin eru æ skakkari því hærra upp sem maður kemur í starfsmannapíramídanum og mjög fáir yfirmenn eru með erlendan bakgrunn. (Ó)sýnileikinn innan stofnananna speglast síðan í innihaldi menningardagskrárinnar.

Þann tíma sem ég hef búið á Íslandi hef ég hitt þónokkra einstaklinga með erlendan bakgrunn sem starfa við menningu en þeir hafa tjáð mér hversu vonlaus þeim finnst staðan vera. Í litlu samfélagi þar sem allir þekkja alla og inniviðir markast af tengslaneti virðist næstum ómögulegt að fá góð atvinnutækifæri. Þrátt fyrir að það virðist ekki vera til nein fyrirliggjandi aðferð til þess að á meðvitaðan hátt ráða bót á þessu ranglæti vill Norræna húsið reyna að brjótast út úr hinu staðbundna samhengi og bjóða upp á breiðara sjónarhorn

Laugardaginn 12.mars höldum við snemmbúinn persneskan áramótafögnuð í Norræna húsinu. Á dagskránni er tilraunakennd persnesk tónlist og boðið verður upp á hefðbundinn persneskan hátíðarmat. Við fögnum um leið upphafinu að dagskrá sem hefur það að markmiði að stofna vettvang fjölbreytileika og inngildingar í Norræna húsinu. Listrænn stjórnandi dagskrárinnar er Elham Fakouri en dagskráin kemur til með að samanstanda af bæði listrænu innihaldi og samtalsviðburðum. Markmiðið er að dagskráin hjálpi okkur að auka við fjölbreytileikann innan Norræna hússins sem menningarstofnunar en ég vona að í framhaldinu geti hún leitt til aukinnar meðvitundar um þessi mál hjá listasenunni á Íslandi sem og á hinum Norðurlöndunum.

Árið 2022 hefur hingað til reynst eitt myrkasta ár í manna minnum, við skulum vonast til þess að tími sé kominn á nýtt upphaf. Með ósk um farsælt nýtt ár.

 

Textinn var þýddur úr sænsku