Banned Books Week er árlegur viðburður sem beinir ljósi að ritskoðun og fagnar frjálsum aðgangi að bókmenntum og upplýsingum. Haldið hefur verið upp á vikuna síðan 1982 í Bandaríkjunum og byrjaði hún sem mótvirkni gegn aukinni ritskoðun og banni við bókum í skólum, bókabúðum og á bókasöfnum.
Vikan fagnar frjálsum lestri ásamt því að dreifa upplýsingum um og beina athygli að ógninni sem steðjar að honum. Í gegnum söguna hafa bókmenntir verið bannaðar af ólíkum ástæðum. Röksemdafærsla sem gjarnan er endurtekin er að það þurfi að vernda börnin frá “óæskilegu innihaldi” eða “áróðri”. Bækur sem oftast eru bannaðar tilheyra gjarnan vísindaskáldskap, fantasíu og hinsegin bókmenntum.
Þrátt fyrir að við hér á Norðurlöndum metum að jafnaði prent- og tjáningarfrelsi mikils, skulum við ekki halda að við séum ónæm fyrir því sem gerist annarsstaðar í heiminum. Með þátttöku i Banned Books Week viljum við taka þàtt i ad halda hinu frjálsa orði lifandi.
Nokkur þekkt dæmi um bækur sem hafa verið bannaðar er Persepolis eftir Marjane Satrapi, 1984 eftir George Orwell, Harry Potter eftir J.K. Rowling og Ástkær eftir Toni Morrison. Hér sérðu nokkrar norrænarbækur og rithöfunda sem hafa sætt ritskoðun eða tilraun til ritskoðunar. Njóttu lestursins!
Norrænar bækur og höfundar sæta ritskoðun
Hvernig býrðu til barn? – Anna Fiske
Bókin hefur verið bönnuð í skólabókasöfnum í Bandaríkjunum þar sem hún er talin vera of klámfengin.
Bróðir minn ljónshjarta – Astrid Lindgren
Í fyrrverandi Tékkóslóvakíu var ekki leyfilegt að gefa bókina út þar sem hún var talin hvetja fólk til uppreisnar gegn stjórnvöldum. Þrátt fyrir það var henni smyglað inn og hún þýdd.
Karlar sem hata konur – Stieg Larsson
Bókin hefur verið bönnuð í skólabókasöfnum í Flórída í Bandaríkjunum.
Kristín Lavransdóttir – Sigrid Undset
Allar bækur Sigrid Undset voru bannaðar í nasista Þýskalandi vegna andstöðu hennar við nasista.
Dúkkuheimili – Henrik Ibsen
Samtímamenn gagnrýndu verkið, mikið til vegna endisins þegar Nora yfirgefur fjölskyldu sína. Í Þýskalandi var skrifaður annar endir því upprunalega verkið var talið eyðileggja siðferði fjölskyldunnar.
Jónsmessudansar – Hannu Salama
Bókin olli miklu uppnámi fyrir andstöðu sína gegn kristni. Salama var ákærður fyrir guðlast og dæmdur í þriggja mánaða fangelsi.