Í september opnar Laut í Norræna húsinu.

Matreiðslumaðurinn Arnór Ingi Bjarkason, ásamt bróður sínum Sigurði Birni og foreldrum þeirra, Laufeyju og Bjarka, opnar nýjan veitingastað í Norræna húsinu í september næstkomandi. Staðurinn hefur fengið nafnið Laut og vísar nafnið í skjólsæla dæld í landslaginu — stað til að nema staðar og njóta. Staðurinn mun bjóða upp á fjölbreytta upplifun, allt frá léttum hádegisverðum og kaffihúsastemningu yfir í metnaðarfulla margrétta smakkseðla á kvöldin.

Arnór Ingi er eigandi og yfirkokkur Michelin-veitingastaðarins Skóg í Vilnius og hefur áður stýrt eldhúsinu á Red Brick, sem hlaut Græna Michelin-stjörnu fyrir sjálfbærni. Skóg verður áfram í fullum rekstri samhliða starfseminni á Íslandi.

Laut sækir innblástur í íslenska náttúru og leggur áherslu á íslenskt hráefni og sjálfbæra nálgun, með norræn gæðahráefni sem viðbót þegar við á. Á daginn verður boðið upp á rétt dagsins, léttar veitingar og kaffi, en á kvöldin margrétta smakkseðil þar sem íslensk og norræn matarmenning verður í forgrunni.