Opnunarpartý HönnunarMars í Norræna húsinu


17:00-19:00

Norræna húsið tekur þátt í HönnunarMars 2020 með fjölbreyttri dagskrá og sýningum í fimm rýmum.

Formleg opnun á sýningunum fer fram föstudaginn 26. júní kl. 17-19. Hönnuðir verða á staðnum til að ræða við gesti og segja frá verkum sínum.

Ljúffengar veitingar í boði norrænu sendiráðanna á Íslandi og Norræna hússins. DJ Otto slær taktinn.

Sýningar og hönnuðir:

  • Hvarfpunktur/Vanishing Point – Ragna Ragnarsdóttir
  • anna – frumgerð af stól – Inga Rán Reynisdóttir & Ulrike Marie Steen
  • HRINGIR – Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir
  • Norsk klassík á íslenskum heimilum- Norska sendiráðið í Reykjavík
  • Eldurinn í jörðinni – Leikskóli Seltjarnarness

Dagskrá HönnunarMars