Hafið – samtal við ungmenni um framtíð líffræðilegrar fjölbreytni


15-17

Umræður fara fram á ensku og verður streymt hér og á Facebook.

Landssamband ungmennafélaga býður upp á opið samtal við vestnorræn ungmenni um framtíð líffræðilegrar fjölbreytni og vistkerfa. Samtalið kemur í beinu framhaldi af vinnustofu ungmennanna fyrr um daginn á þessu sviði. Þau segja frá vinnu sinni og ræða við ráðamenn, sérfræðinga og aðra þátttakendur. Fókus umræðunnar verður á lífríki hafsins.


Viðburðurinn er ein af nokkrum vinnustofum ungmenna víðs vegar á Norðurlöndum um líffræðilega fjölbreytni og vistkerfi í aðdraganda viðræðna um nýjan samnings Sameinuðu þjóðanna á þessu sviði í október. Kröfur ungmennanna munu skila sér inn í samningaviðræðurnar.


Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við 
Norðurlönd í fókus og Norræna Atlantssamstarfið (NORA) styrkir verkefnið.


Dagskráin sem hefst kl. 15:
– Skandinavískar vísur í flutningi sveitarinnar Vísur og skvísur.

– Vestnorræn ungmenni kynna afrakstur vinnustofu sinnar um líffræðilega fjölbreytni.
– Pallborðsumræður um líffræðilega fjölbreytni. Í pallborði verða:

  • Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra
  • Hafdís Hanna Ægisdóttir, plöntuvistfræðingur og forstöðumaður Landgræðsluskólans
  • Elva Hrönn Hjartardóttir, ungmennafulltrúi Norðurlanda á sviði líffræðilegrar fjölbreytni
  • Pétur Halldórsson, formaður Ungra umhverfissinna.


Verkfærakista:
Norðurlandaráð hefur gefið út verkfærakistu fyrir ungmenni til að nýta í umræðum sínum um líffræðilega fjölbreytni og vistkerfi á árinu og til að setja fram kröfur sínar og markmið. 
Verkfærakistuna má nálgast hér

Skoða viðburðadagatal Norræna hússins