Er ég ósýnilegur?


 

Sóley Dröfn Davíðsdóttir sýnir olíuverk sem flest eru máluð á götum Parísarborgar. Hún fékk hugmyndina þegar hún sá betlara í hverfinu sínu halda skilti á lofti sem á stóð „Er ég ósýnilegur?”. Þessum manni hafði hún líkt og aðrir skundað daglega framhjá og reynt að horfa í aðra átt. Með myndum sínum vill Sóley vekja athygli á tilveru þessa hóps, sameiginlegri ábyrgð okkar og umfram allt sýna þessi stórbrotnu andlit sem öll bera vott um erfiða ævi.

Sýningin stendur yfir í anddyri Norræna hússins frá 1. desember 2017 – 7. janúar 2018. Aðgangur er ókeypis. 

www.norraenahusid.is