HRINGRÁSARJÓL: Skiptimarkaður og smiðja með Endurtakk!
12:00 - 17:00
Notað verður nýtt á jólahringrásarmarkaði Norræna hússins, Landverndar og Grænfánans! Viðburðurinn er hluti af Aðventudagskrá Norræna hússins og hvatningarátaki Landverndar og Grænfánans um Nægjusaman Nóvember.
Dagskrá
12.15-13.00: Sögustund Grænfánans – Upplestur og myndasýning úr væntanlegum bókum um hringrásir (í barnabókasafninu)
13:00-17:00 – Jólahringrásarmarkaður og smiðja með Endurtakk
Sögustund Grænfánans:
Menntateymi Landverndar les upp úr bókum sínum sem væntanlegar eru á næsta ári en gerð þeirra var styrkt af Þróunarsjóði námsgagna. Um er að ræða þrjár bækur um hringrásir. Vatnshringrásin er tekin fyrir í einni bókinni, þá hringrás plöntunnar og í þriðju bókinni fáum við sögu úr hringrásarhagkerfinu. Bækurnar prýða gullfallegar myndskreytingar eftir myndlistarkonuna Ágústu Gunnarsdóttur.
Bækurnar heita:
Dögg Dropi og vatnshringrásin
Litla fræið og hringrás plöntunnar
Auður og stólarnir – saga úr hringrásarhagkerfinu
Vínylskreytingasmiðja með Endurtakk:
Lífgaðu uppá flíkurnar þínar með Endurtakk. Komdu með eigin flík eða veldu þér bol úr second hand safninu okkar og gerðu hann að þínum eigin – alveg frítt!
Teiknaðu, klipptu út og raðaðu saman þinni eigin hönnun. Endurtakk-teymið sér svo um að festa hana á flíkina með sérstöku hitapressunni okkar.
Við mælum með að velja flíkur úr bómull, til dæmis skyrtu, bol eða gallabuxur, þar sem vínyllinn getur átt erfitt með að festast á þykkari efnum eða efnum úr blönduðum trefjum.
Jólahringrásarmarkaður:
Það sem nýtist þér ekki lengur gæti vel reynst fjársjóður annars – og öfugt! Komdu t.d. með bækur, leikföng, spil og skiptu fyrir eitthvað annað. Tilvalið tækifæri til þess að finna umhverfisvænar jólagjafir sem þú getur sett undir tréð með góðri samvisku. Við biðjum þátttakendur vinsamlegast aðeins að koma með hluti sem eru í góðu og nothæfu ástandi.
Skiptimarkaðsflokkarnir eru:
- Leikföng
- Spariföt og prjónuð föt
- Jólaskraut/jólamunir
- Bækur og spil
- Hlutir fyrir heimilið
- Smágjafir – tilvalið fyrir jólasveina
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Aðgengi að Elissu sal og andyri er gott, lágur þröskuldur er inn í Elissu sal. Aðgengileg salerni eru á aðalhæð.
Nánar um aðgengismál má lesa með því að smella hér.