Um Mink og Menn
17:00
Samtök um dýravelferð, Humane World for Animals og Norræna húsið bjóða til málþings um loðdýrarækt á Íslandi. Fjallað verður meðal annars um stöðu greinarinnar, þróun hennar síðasta áratug, dýravelferð, efnahagslega þætti og hvað framtíðin kann að bera í skauti sér.
Á dagskrá verða erindi íslenskra og erlendra sérfræðinga, stuttmyndir og tónlistaratriði með Ragnheiði Gröndal. Einnig fara fram pallborðsumræður þar sem fulltrúar stjórnmálaflokka ræða málefnið og svara spurningum.
Meðal erlendra gesta eru Mike Moser, sem starfaði um árabil innan alþjóðlega loðdýraiðnaðarins og hagfræðingurinn Artūrs Kaņepājs sem hefur unnið ítarlega efnahagsgreiningu á loðdýrarækt á Íslandi og mun kynna helstu niðurstöður hennar á málþinginu.
Léttar veitingar og fordrykkir verða í boði.
Aðgangur er ókeypis og öll eru velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Nánari dagskrá verður kynnt síðar.
Aðgengi: hér