Velkomin á opnun sýningarinnar Kroppar og kassar


14:00-16:30
Barnabókasafn
Aðgangur ókeypis

Vetrarsýning Barnabókasafns Norræna hússins opnar laugardaginn 10. október frá kl. 14:00–16:30. 

Yngstu gestum er boðið að taka þátt í hreyfismiðju, skoða sýninguna og fara í ratleik! Þau sem finna öll hlutina geta farið í afgreiðslu bókasafnsins og fengið lítil verðlaun. Einnig verða leikir/föndur í boði í tengslum við sýninguna. 

Sýningin Kroppar og kassar er byggð á bókinni Kurjens Kartta eftir Reetta Niemela og er prýdd fallegum myndskreytingum eftir Eri Shimatsuka. 

Arkitektúr er allt í kringum okkur, þótt við tökum ekki alltaf eftir honum. Húsin og rýmin sem við dveljum í hafa áhrif á daglegt líf okkar – hvernig við hreyfum okkur, leikum, vinnum og erum saman.
En hvernig hefur hönnun og arkitektúr áhrif á okkur? Hvernig húsum viljum við búa í? Þurfum við ólík rými fyrir ólíkar athafnir – og hvað gerir rými gott?
Í hönnun Alvars Aalto var manneskjan ávallt í fyrirrúmi, og börn voru þar engin undantekning. Í teikningum sínum og skipulagi gerði Aalto ráð fyrir börnum og þörfum þeirra. Verk hans minna okkur á að börn eiga rétt á góðu daglegu lífi og umhverfi sem tekur mið af þeim. 

Ókeypis er á sýningar og viðburði Norræna hússins og öll eru velkomin! 

Aðgengi að barnabókasafni er niður stiga frá bókasafni eða með lyftu frá andyri og í gegnum sýningarýmið Hvelfingu.Starfsfólk á bókasafni veitir nánari upplýsingar og aðstoðar eftir þörfum. Nánari upplýsingar um aðgengi er að finna með því að smella hér.  

Verk á forsíðu eftir Eri Shimatsuka.