Trees & Seas kvikmyndahátíð: INCONCEIVABLE
18:00
Sem hluti af Trees & Seas kvikmyndahátíð bjóða SEEDS, í samstarfi við Plastic Oceans, Norræna húsið og Unga umhverfissinna, upp á kvöld þar sem fjallað verður um eitt af brýnustu umhverfismálum samtímans: plastmengun og örplast.
INCONCEIVABLE
INCONCEIVABLE kannar áhrif örplasts á frjósemi okkar og hvernig þessar örsmáu plastagnir geta haft áhrif á líkama okkar og framtíð.
Að sýningu lokinni verða meðlimir úr framleiðsluteymi myndarinnar með okkur í áhugaverðum umræðum um gerð myndarinnar, niðurstöður hennar og víðtækari áhrif örplastmengunar.
Komdu, horfðu, spurðu, taktu þátt í umræðum og uppgötvaðu hvernig kraftur kvikmyndar getur orðið að krafti til aðgerða.
Leikstjórn: Kristin Rogers and Raphael Rogers
Lengd: 80 min
Ókeypis aðgangur
Viðburðurinn fer fram á ensku
Upplýsingar um aðgengi í Norræna húsinu má finna með því að smella hér
.
